24.6.2008 | 21:38
Gangan
Sumarsólstöðugangan gekk líka svona vel. Heyrði í Hafdísi frænku fyrr um kvöldið og héldum við að það yrði kannski svona 20 manns. Ef það kæmu fleiri þá yrðum við rosa ánægðar með það. Emma og Stjáni skutluðu okkur inn í Dal og það var svo gaman að sjá hve margir voru á kvöldgöngu um bæinn! En þegar við mættum i Dalinn streymdi fólk inn og það voru rúmlega 60 manns í göngunni með okkur. Þetta var alveg frábært. Við áttum alls ekki von á svona góðri þátttöku. Gangan gekk mjög vel og veðrið náttúrlulega alveg yndislegt. Það var nú ekki dónalegt að vera á Klifinu og horfa á sólsetrið og á Heimakletti við sólarupprás. Fólk var almennt mjög ánægt og það voru margir á rúntinum að fylgjast með ferðum fólksins. Spurning hvort þetta sé komið til að vera.
En ég er nú svo heppin að eiga frábæra nágranna í austurbænum sem buðu mér, og fleirum, í pottinn eftir gönguna. Auðvitað þáði ég gott boð... og einn ískaldan... þar sem persónuleg afrek næturinnar voru rædd
Athugasemdir
Hæ það er nú kominn tími til að ég komi í pottinn hjá þér. Kem til Eyja á föstudagseftirmiðdag fljúgandi frá Bakka. Úlli er mættur í Eyjarnar. Rétt náði bátnum í hádeginu i dag.
Hittumst hressar á goslokum.
Stina
KG, 2.7.2008 kl. 18:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.