Gangan

Fraenkurnar IMG_4107Sumarsólstöðugangan gekk líka svona vel.  Heyrði í Hafdísi frænku fyrr um kvöldið og héldum við að það yrði kannski svona 20 manns. Ef það kæmu fleiri þá yrðum við rosa ánægðar með það.  Emma og Stjáni skutluðu okkur inn í Dal og það var svo gaman að sjá hve margir voru á kvöldgöngu um bæinn!  En þegar við mættum i Dalinn streymdi fólk inn og það voru rúmlega 60 manns í göngunni með okkur.  Þetta var alveg frábært.  Við áttum alls ekki von á svona góðri þátttöku.  Gangan gekk mjög vel og veðrið náttúrlulega alveg yndislegt.  Það var nú ekki dónalegt að vera á Klifinu og horfa á sólsetrið og á Heimakletti við sólarupprás. Fólk var almennt mjög ánægt  og það voru margir á rúntinum að fylgjast með ferðum fólksins.  Spurning hvort þetta sé komið til að vera. 

En ég er nú svo heppin að eiga frábæra nágranna í austurbænum sem buðu mér, og fleirum, í pottinn eftir gönguna.  Auðvitað þáði ég gott boð... og einn ískaldan... þar sem persónuleg afrek næturinnar voru ræddWink

 


Sumarsólstöður

Myndir Agusta 001Annað kvöld kl. 22 ætlar hópur af göngufólki að ganga saman á fjöllin í Eyjum.  Við ætlum að byrja á Dalfjalli, klífa Klifið, Heimaklett og fellin þrjú, Eldfell, Helgafell og Sæfell.  Það verður gaman að sjá hvernig til tekst.  Hér er stór hópur fólks sem hefur gaman af útivist og veðurspáin er flott fyrir kvöldið. Náttúran í Eyjum svíkur engan þegar vel viðrar.

"Gremo" Göngusystur!! koma svo...Happy


Augnmaskinn

121Augnmaskinn frá Guinot klikkar ekki.  Þegar við komum niður af Triglav sem er ekki nema 2864 m og tveggja daga göngu fannst herbergisfélögum mínum vera nokkuð "bjúgaðir" í kringum augun. Þótt ég hafi nú gleymt ýmsum ómerkilegum hlutum heima þá var ég með augnmaskann í bakpokanum. Vola! eftir tíu mínútur litu allar út eins og nýfermdar stúlkukindur!  Já hann klikkar ekki augnmaskinn frá Guinot.

sLOVEnia

Við göngusystur erum komnar heim úr klikkaðri vikuferð um Slóveníu.  Það var að sjálfsögðu fjör frá upphafi til enda.  Allir vöðvar líkamans nýttir til hins ýtrasta eins og rass- og lærvöðvar til að ganga á Triglav, talvöðvar til mala svolítið og magavöðvar fengu útreið í Doljenske Toplic.  Þar var hlegið út í eitt. Við gistum tvær nætur í þessu fallega þorpi og héldum að við værum að fara í Spa dæmi.  En þetta var nú meira líkt Heilsuhælinu í Hveragerði og Reykjalundi.  Þegar við vorum síðan mættar á svæðið, 16 einum of fjallhressar konur,  þá líktist þetta helst Heilsubælinu í Gervahverfi! Ég er enn að velta því fyrir mér hvernig við komumst þarna inn og út aftur. 

039En Slóvenía er mjög fallegt land og kyrrlátt.  Það er svo kyrrlátt að þegar við fórum í river rafting á ánni Kolpu sem skilur að Slóveníu og Króatíu þá voru meiri læti í okkur en ánni.  Áin er svo lygn, það heyrist ekkert í henni, og flúðirnar, þær eru heimagerðar! Það var nú samt gaman í "river rafting" Grin


Sumarfrí

Nú styttist óðum í sumarferðina mína.  Fer til Slóveníu í gönguferð með göngusystrum þann 8. júní.  Fór í Eyjavík í gærmorgun og sá líka þetta fína buff með skjaldarmerkinu.  Var ekki lengi að hugsa mig um.  Hringdi svo í mömmu og bað hana um að lána okkur, göngusystrum, íslenska fánann.  Á maður ekki flagga því allra besta!  Sideways

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband